Í þessari grein · 5 hlutar
Í könnun Washington Post frá ágúst 2020 sagði helmingur útivinnandi foreldra að ef börnin væru í fullu fjarnámi heima yrði erfitt eða ómögulegt fyrir þá að vinna.
Margar fjölskyldur hafa nú verið í fjarnámi mánuðum saman vegna skólalokana, sóttkvíar eða eigin vals. Ef fjölskyldan þín er eins og flestar áttu líklega bæði góða og slæma daga. Í þessari grein gefum við nokkur ráð sem hjálpa þér í gegnum erfiðu dagana og búa í haginn fyrir betri fjarnámsdaga fram undan.
Vertu hreinskilin(n) og opin(n) við yfirmanninn
Nær allir vinnustaðir gengu í gegnum gríðarlega breytingu í mars 2020 þegar fjarvinna varð eini kosturinn fyrir starfsfólk. Fyrirtækin hafa þurft að verða miklu sveigjanlegri en þau hefðu nokkurn tíma ímyndað sér, meðal annars með sérstöku fyrirkomulagi fyrir útivinnandi foreldra.
Á meðan þú heldur utan um fjarnám barnanna skaltu halda opnum og skýrum samskiptum við yfirmanninn. Flest fyrirtæki sýna aðstæðum foreldra skilning í dag og veita mikinn sveigjanleika. Þegar þú gerir áætlun skaltu tryggja að væntingar bæði þínar og yfirmannsins séu skýrar.
Á meðan þú sinnir tvöföldu hlutverki heima getur verið gagnlegt að skipuleggja óhefðbundinn vinnutíma. Geturðu vaknað snemma og unnið eitthvað áður en skólinn byrjar? Geturðu sett fundi eftir að skóladeginum lýkur svo þú verðir ekki trufluð/truflaður?
Komdu á skipulagi og rútínu fyrir fjölskylduna
Það er ekkert leyndarmál að heimsfaraldurinn hefur raskað venjulegu lífi – og það er vægt til orða tekið. Venjulegt skipulag og rútína hversdagsins hurfu og margir foreldrar eru útkeyrðir.
Dagleg rútína fyrir fjölskylduna getur hjálpað mjög mikið í fjarnáminu. Börnin vita þá við hverju er að búast dag frá degi og eiga auðveldara með að greina á milli námstíma og frítíma heima. Það þarf þó ekki að skipuleggja hverja mínútu. Settu upp almennt flæði fyrir daginn og gerðu smávægilegar breytingar eftir þörfum.
Ekki gleyma að skipuleggja svefninn líka. Margir unglingar myndu sofa fram að hádegi ef þeir gætu og vaka frameftir hvað sem það kostar. Settu skýr viðmið um háttatíma og fótaferðartíma á virkum dögum svo að börnin séu tilbúin að læra á daginn.
Gefðu börnunum ábyrgð
Þegar þú samræmir fjarvinnu og fjarnám skiptir smá hjálp miklu máli! Fáðu börnin til að taka að sér verkefni á heimilinu sem hæfa aldri þeirra. Hér eru nokkrar tillögur:
- Láttu börnin stilla sína eigin vekjaraklukku. Láttu þau fá lista yfir það sem þarf að gera áður en sest er að morgunmat, til dæmis að búa um rúmið, bursta tennurnar eða taka fram fartölvuna og skóladótið.
- Gakktu úr skugga um að börnin hafi þau skólagögn sem þau þurfa. Litamerktar stílabækur og möppur hjálpa þeim að halda skipulagi svo þau eyði minni tíma í að spyrja þig einfaldra spurninga.
- Skipuleggðu fund með börnunum í lok dags. Láttu þau segja þér frá verkefnunum og því sem þau gerðu yfir skóladaginn. Að vita af þessum fasta fundi á hverjum degi getur hjálpað þeim að halda sig við efnið yfir daginn.
Biddu um hjálp
Einangrunin í COVID-19 er það versta fyrir marga. Ef þú getur, fáðu nokkra úr COVID-kúlunni ykkar til að hjálpa við fjarnámið og veita börnunum svolítinn félagsskap. Það gætu verið afar og ömmur, aðrir foreldrar úr skólanum eða nágrannar. Þú gætir líka íhugað námshópa eða smáskóla í nærsamfélaginu.
Ef þú býrð með maka eða hinu foreldrinu gætuð þið skipt dögunum í vaktir. Þegar hitt foreldrið vinnur sinnir þú fjarnáminu og þegar þú vinnur er hitt með börnunum. Þannig fá börnin meiri einstaklingsathygli og þú getur einbeitt þér að vinnunni.
Sýndu mikla mildi
Á þessum ómögulega erfiðu dögum – þegar allt virðist vera að hrynja – mundu að sýna sjálfri/sjálfum þér mikla mildi. Sýndu maka þínum, börnunum og kennurunum sömu mildi. Enginn er sérfræðingur í að takast á við þennan heimsfaraldur. Gerðu þitt besta og láttu það duga.




