Fréttir

10 milljónir bandarískra foreldra velja Safe Lagoon

Chris Kennedy
Birt · 3 mín. lestur
10 milljónir bandarískra foreldra vita af hverju þú ættir að nota Safe Lagoon

Meðalskjátími barns er í dag heilar 7,5 klukkustundir á dag og foreldrar leita leiða til að koma á heilbrigðri tækninotkun. Mörg foreldraforrit segjast taka á tilteknum vandamálum barna á netinu. En með Safe Lagoon er nú komið eitt forrit fyrir fjölskyldur sem tekur á mikilvægustu þörfum þeirra.

Þetta snýst ekki lengur bara um vefráp

Foreldrar leita að heildarlausn sem hjálpar þeim að halda utan um og túlka hið gríðarlega gagnaflæði sem börn rekast á í tækjum sínum í dag.

Á stafrænni öld mæta börn nýjum ógnum og áskorunum á hverjum degi, svo sem einelti, brotum á friðhelgi, netníðingum, grófu efni og fleiru. Ein á báti skortir börn þekkingu og reynslu til að gæta öryggis síns á netinu. Safe Lagoon er einfalt verkfæri sem hjálpar þeim að rata um flókinn netheiminn.

Sparar þér tíma

Um leið og við tökumst á við það verkefni að byggja upp ábyrga og örugga notkun nettengdra tækja spörum við foreldrum líka dýrmætan tíma.

Þegar foreldrar nota Safe Lagoon þurfa þeir ekki lengur að fara handvirkt, síðu fyrir síðu, yfir vafraferil barnanna, og komast hjá uppákomum þegar þeir grípa síma barnsins og byrja að lesa skilaboðin sjálfir. Safe Lagoon léttir á foreldrum með því að greina í skýinu allar leiðir sem börnin nota til samskipta – og ef vandamál eða hegðunarmynstur sem gæti bent til vanda kemur upp sendum við tilkynningu.

Uppeldið er nógu erfitt án þess að þurfa að læra nýtt tungumál

Foreldrar þekkja ekki alltaf slangrið og skammstafanirnar sem notaðar eru á netinu í dag (gömlu góðu „lol“-dagarnir eru löngu, löngu liðnir), og miklum tíma getur verið varið í að ráða í efnið á meðan alvarlegir atburðir fara fram hjá manni. Við sjáum um það. Safe Lagoon er í stöðugri þróun og lærir hvernig börn tala og eiga samskipti í dag. Við náum mjög góðum árangri í að skilja slangur með samanburði við milljónir færslna í gagnagrunninum okkar. Það tæki foreldri gríðarlegan tíma að gera það sama – og satt best að segja er afskaplega leiðinlegt að lesa skilaboð barnanna í sífellu. Nú spara foreldrar dýrmætan tíma með því að láta Safe Lagoon sjá um þetta.

Foreldrar vernda börn á netinu

Könnun Pew Research Center meðal foreldra sýnir að foreldrar í dag beita fjölbreyttum aðferðum til að leiða börnin í átt að heilbrigðum stafrænum venjum.

Nettengd tæki eru svo fyrirferðarmikil í lífi barna að 65% foreldra hafa gripið til „stafræns stofufangelsis“ þegar börnin haga sér illa.

Þótt sífellt fleiri foreldrar noti foreldraforrit eins og Safe Lagoon stýra flestir enn samskiptum barnsins á netinu handvirkt, allt frá skjátíma til þeirra vefsíðna sem barnið heimsækir. Samkvæmt rannsókn Pew:

Sífellt fleiri foreldrar leita til tækninnar til að hjálpa sér að stýra og fylgjast með netnotkun barnsins. Til dæmis:

39% bandarískra foreldra nota foreldrastillingar til að sía, loka á eða fylgjast með netnotkun barnsins, sem jafngildir meira en 10.000.000 bandarískum foreldrum sem hafa ákveðið að nota hugbúnað á borð við Safe Lagoon til að vernda börnin sín.

Forritið sem foreldrar velja

Frá lokun á óöruggt efni og leitarniðurstöður, stjórnun leikja og skjátíma tækja, staðsetningu barnsins og rauntímaskýrslum til sjálfvirkrar innsýnar í hegðun á netinu – Safe Lagoon er einfaldlega besta leiðin til að vernda börnin þín þegar þau kanna netið.

Safe Lagoon er einstakt og byltingarkennt uppeldisverkfæri sem hjálpar foreldrum að skilja betur og halda utan um stafræna virkni og öryggi barnanna. Hjá Safe Lagoon erum við spennt að færa uppeldið inn í 21. öldina. Við vinnum hörðum höndum að því að styðja við sterk tengsl og öruggari heim fyrir fjölskyldur um allan heim.

Skráðu þig í ókeypis prufu og slástu í hóp 10 milljóna annarra foreldra sem nota foreldraforrit til að vernda börnin sín.

Chris Kennedy

Skrifar fyrir blogg Safe Lagoon · Fleiri greinar á blogginu

Stafrænt uppeldi gert einfalt

Safe Lagoon er foreldraforrit sem hjálpar þér að leiðbeina barninu þínu í stafrænu lífi þess. Einföld uppsetning og ókeypis niðurhal.